17. júní dagskráin er tilbúin í Fjallabyggð og að vanda er nokkuð hefðbundin dagskrá bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði.
Dagskrá í Fjallabyggð:
Á Siglufirði, við Siglufjarðarkirkju og á Ráðhústorginu verður stórglæsileg hátíðardagskráog er dagskráin í höndum Ungliðasveitanna SmáStráka, SmáDjarfs og Fjallabyggðar í ár.
Hátíðarathöfn hefst við Siglufjarðarkirkju kl. 11:00-11:30 en þar mun Alex Helgi Óskarsson, nýstúdent, leggja blómsveig að minnisvarða sr. Bjarna Þorsteinssonar. Að þeirri athöfn lokinni eru gestir hvattir til að ganga að Þjóðlagasetri sr. Bjarna þar sem boðið verður upp á kaffi og með því allan daginn en opið verður í Þjóðlagasetri til kl. 17:00.
Klukkan 13:00 – 15:00 verður hátíðardagskrá á Ráðhústorginu þar sem flutt verður hátíðarræða, ávarp Fjallkonunnar Kristínar Margrétar Halldórsdóttur og tónlistaratriði.
Aparóla verður lögð frá Suðurgötu að Snorragötu á Siglufirði, hoppukastalar, sölubás þar sem m.a. verður hægt að kaupa candyflos og margt fleira skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna.
17. júní hlaup UMF Glóa verður ræst út kl. 11:30 á Rammalóðinni og er fyrir börn 6-11 ára (fædd 2014-2019).
Síldarminjasafnið opið frá 10:00-17:00 og Síldarkaffi frá kl. 12:00-17:00
Ljósmyndasögusafnið Saga-Fotografica er opið frá kl. 13:00-16:00. Þar er að finna m.a. sýningu Rutar Hallgrímsdóttur, RAX og fleiri. Nýjar myndavélar og margt fleira áhugavert að skoða. Safnið verður opið alla daga í sumar frá kl. 13:00-16:00.
Í Kompunni, Alþýðuhúsinu verður sýning Vilhjálms Yngva Hjálmarssonar opin frá kl. 14:00-17:00 og í anddyri Alþýðuhússins verða verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur til sýnis.
Í Pálshúsi í Ólafsfirði er sýning um sögu íslenskra sjókvenna. „Hún var karlmannsígildi til allra verka / Am I Man Enough“ eftir listakonurnar Marsibil Sól Þórarinsdóttir Blöndal og Salóme Hollander. Safnið er opið frá kl. 13:00-17:00.
Íbúar og gestir Fjallabyggðar eru hvattir til að mæta og fagna þessari hátíðarstund saman.
