Kjörskrárstofn og leiðbeiningar vegna forsetakosninga í Fjallabyggð:
Á kjörskrá í Fjallabyggð 9. júní s.l. eru 1602, 820 karlar og 782 konur.
Við kjör til forseta Íslands, er fram fer 30. júní 2012, er skipting í kjördeildir í sveitarfélaginu Fjallabyggð sem hér segir:
- Í kjördeild I í Ráðhúsi Siglufjarðar, 2. hæð kjósa íbúar Siglufjarðar. Kjörfundur hefst kl. 10:00.
- Í kjördeild II að Ægisgötu 13 í Ólafsfirði (húsi Menntaskólans) kjósa íbúar Ólafsfjarðar. Kjörfundur hefst kl. 10:00.
- Kjörfundi má slíta átta klukkustundum eftir að hann hefst, hafi hálf klukkustund liðið frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
- Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00.
- Kjörskrár vegna kjörs forseta Íslands, sem fram fer 30. júní 2012, liggja frammi á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar að Gránugötu 24 og Ólafsvegi 4.