Mótaröðin er vikulegt golfmót innanfélagsmanna í Golfklúbbi Siglufjarðar og hófst mótið nú í vikunni á Siglógolf á Siglufirði. Mótaröðin verður skipt upp í tvo flokka eins og síðustu árin og er keppt í punktakeppni með forgjöf.

Í B flokki með yfir 28 í forgjöf sigraði Ólafur Guðmundur Guðbrandsson með 20 punkta, en hann er skráður með 33,3 í forgjöf. Í A flokki með undir 28 í forgjöf sigraði Þorsteinn Jóhannsson með 19 punkta en hann er skráður með 18,8 í forgjöf.

Jón Sigmundsson var í 2. sæti í B flokki með 17 punkta og Ása Guðrún Sverrisdóttir var í 2. sæti í A flokki með 17. punkta.

Eins og undanfarin ár verður greint frá helstu golfmótum sumarsins í Fjallabyggð hér á síðunni.

 

Flokkar: 

  • A flokkur: 0 til 28,0 í forgjöf
  • B flokkur: 28,1 til 54 í forgjöf

Keppendur og forgjöf:

Úrslit mótsins eftir punktum: