77 viðvaranir voru gefnar út í sumar, þar af átta appelsínugular. Aldrei hafa fleiri viðvaranir verið gefnar út yfir sumartímann frá því að Veðurstofan tók upp nýtt viðvaranakerfi. Á Norðurlandi voru 14 veðurviðvaranir gefnar út, 6 á Norðurlandi eystra og 8 á Norðurlandi vestra, en allt sumarið 2023 voru aðeins 7 viðvaranir gefnar út um allt land.
Flestar viðvaranir voru gefnar út í júní, 26 gular og átta appelsínugular. Þær tengdust nær allar norðanóveðrinu sem geisaði í byrjun mánaðarins. Þá gekk yfir landið norðan- og norðvestan hvassviðri eða stormur ásamt mikilli úrkomu á Norður- og Austurlandi. 18 viðvaranir voru gefnar út vegna hríðar og fimm vegna snjókomu, en 11 vegna vinds.
Júlí var nokkuð rólegri, þá voru 13 viðvaranir gefnar út. Óvenju blautt var á vestanverðu landinu, en sex rigningaviðvaranir voru gefnar út í júlí. Eftirstandandi viðvaranir voru vegna vinds.
30 viðvaranir voru gefnar út í ágúst, en þá var bæði úrkomusamt og hvasst í flestum landshlutum. Um verslunarmannahelgina var varað við hvassviðri á sunnan- og vestanverðu landinu. 22. til 24, ágúst rigndi mikið á norðurhelmingi landsins og við lok mánaðar gerði mikið vatnsveður sunnan- og vestanlands.
Flestar viðvaranir voru gefnar út á Suðausturlandi og Breiðafirði, tíu talsins, en fæstar á höfuðborgarsvæðinu, einungis tvær. Í aðdraganda norðanóveðursins í júní voru gefnar út tvær gular viðvaranir fyrir allt landið, ein vegna vinds og önnur vegna hríðar.
Undanfarinn vetur var heldur rólegri með tilliti til veðurs. 194 viðvaranir voru gefnar út, sem er lægsti fjöldi viðvarana yfir vetratímann síðan viðvaranakerfið var tekið upp. Þar af voru 185 gular og einungis níu appelsínugular.
Heimild: Vedur.is