Þriðjudaginn 11. febrúar munu viðbragðsaðilar í Fjallabyggð halda upp á 112 daginn. Í tilefni dagsins verður sýning á bifreiðum, tækjum og tólum Slökkviliðs Fjallabyggðar ásamt sjúkraflutninga og björgunarsveita. Kynningin verður frá kl. 16-18 á Siglufirði og í Ólafsfirði.