1. maí hlaup verður haldið á Þórsvellinum á Akureyri, þ.e. frjálsíþróttavellinum við Bogann, miðvikudaginn 1. maí og hefst kl 12:00.
Leikskólahlaup: 400m – einn hringur á vellinum
Grunnskólahlaup: Hægt að velja um 2 km eða 5 km.
5 km hlaup: Fyrir fólk á öllum aldri – verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í nokkrum aldursflokkum.
Allir skráðir þátttakendur fá verðlaunapening, pizzu frá Sprettinum og hressingu frá MS að hlaupi loknu.
Keppendur þarf að skrá á netinu fyrir keppnisdag,en keppnisgögn (númer) og sundmiðar verða afhent í Hamri þriðjudaginn 30. apríl milli kl. 16:00 og 18:00 og í Hamri á keppnisdag frá 9:30 – 11:30.
Hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur verðlaunabikar.
Allir krakkar fá frítt í hlaupið, þökk sé Akureyrarbæ, Þelamerkurskóla, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Auk fyrrnefndra sveitarfélaga og skóla, styrkir Sprettur-inn, MS og stéttarfélögin á Eyjafarðarsvæðinu hlaupið, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Frekari upplýsingar og myndir af hlaupaleiðum má finna hér: Nánari upplýsingar – 1. maí hlaup
Skráning er hérna: Skráning í 1. maí hlaup