Laugardaginn 1. ágúst býður Fjallabyggð börnum og ungmennum yngri en 18 ára frítt í sund í Íþróttamiðstöðinni á Ólafsfirði. Gjald fyrir fullorðinn er 1090 kr., skv. gjaldskrá en gjald fyrir börn væri annars 520 kr.

Gestum tjaldsvæðisins á Siglufirði gefst jafnframt kostur á að nýta sturtuaðstöðu í Íþróttamiðstöðinni á Siglufirði.

Sundlaugin á Siglufirði er lokuð vegna framkvæmda, en sturtuaðstaðan þar er opin fyrir gesti tjaldsvæðisins.