Eyþór Ingi Gunnlaugsson og hljómsveit stíga á svið á upptaktstónleikum Whale Music Festival laugardaginn 8. ágúst kl. 19:00.
Rokkklassík mun hljóma yfir þegar Eyþór Ingi og hljómsveit taka yfir sviðið í Ísstöðinni á Dalvík. Frítt er inn á viðburðinn.
Lög frá hljómsveitum á borð við:
Led Zeppelin, Deep Purple, Muse, Radiohead, Queen, Jet Black Joe og fleiri frábæra slagara.
Hljómsveitin er skipuð:
– Eyþóri Inga Gunnlaugssyni, söngur
– Óskari Loga Ágústssyni (The Vintage Caravan), gítar
– Benna Brynleifssyni, trommur
– Þórði Sigurðssyni, Hammond orgel
– Matthíasi Mogensen, bassi