VR óskar eftir vönduðum orlofshúsum eða íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsfólk sitt. VR leitar að húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.

Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 10. desember 2023. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.

Öllum tilboðum verður svarað.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:

  • Lýsing á eign og því sem henni fylgir
  • Ástand eignar og staðsetning
  • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
  • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni.