Vorfundi smábátasjómanna 2026 verður streymt í sal Slysavarnardeildarinnar Varnar, Tjarnargötu 18 á Siglufirði, fimmtudaginn, 9. apríl. Fundurinn hefst kl 17:00 til kl 18:30. Boðið verður upp á kaffi og vöfflur á meðan á fundi stendur.
Að fundinum standa Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysavarnaskóli sjómanna.

Dagskrá

  • Opnun: Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda

  • Dagskrá og önnur mál, Þorsteinn Þorkelsson sérfræðingur hjá Samgöngustofu

  • Umræður og sýnikennsla um frágang, uppsetningu og losun björgunarbáta. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson starfsmenn Samgöngustofu.

  • Hættumat um borð. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson

  • Kaffihlé

  • Frumsýning á nýjum auglýsingum Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu um frágang og uppsetningu björgunarbáta og mikilvægi gátlista áður en lagt er af stað úr höfn.

  • Aggan, öryggisapp fyrir smábáta, Gísli Níls Einarsson hjá Alda Öryggi

  • Kynning og umræður um öryggismál smábáta. Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna

  • Áherslur aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar vegna strandveiða

  • Skútan lögskráningarkerfi sjómanna notkun og forsendur. Helgi Jóhannesson, deioldarstjóri áhafna, skráninga og leyfa hjá Samgöngustofu

  • Umræður ef tími gefst til (fundarmönnum verður líka boðið að senda spurningar inn á fundinn sem verður svarað á fundinum eða eftir hann gefist ekki tími til)

Staðsetning

Fundurinn fer fram á netinu. Hlekkur á fundinn er hér.

Efni fundar

Hér að neðan eru tenglar á efni sem rætt verður á fundinum. Að auki má nálgast fræðslu- og öryggisefni fyrir smábátasjómenn hér: http://island.is/smabatar.