Fjallabyggð hefur hafið götuhreinsun sem er einn af vorboðunum í sveitarfélaginu. Sópað var á Siglufirði í dag og á morgun, föstudaginn 13. febrúar verður götur sópaðar í Ólafsfirði. Óvenjumild tíð hefur verið í Fjallabyggð að undanförnu og var því ákveðið að fara snemma af stað með vorhreinsun. Venjulega er á þessum árstíma mikill snjór á götum og stígum í Fjallabyggð en hlýindi síðustu daga hafa skapað aðstæður til að hefja hreinsunarstarf fyrr en venjulega. Sérstaklega verður unnið að því að fjarlægja sand sem dreift hefur verið yfir vetrartímann til hálkuvarna, en með þessu er komið í veg fyrir að hann berist í fráveitukerfið.
Hreinsunartækin snyrta götur og gangstéttar.