Á fundi markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar þann 14. mars síðastliðinn var samþykkt að auglýsa eftir aðilum eða félagasamtökum í Fjallabyggð til að taka að sér framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna í bænum. Með umsókn skulu fylgja með drög að dagskrá. Leitast skal við að hafa dagskrá hátíðarhaldanna sem fjölbreyttasta þannig að hún höfði til allra bæjarbúa og jafnframt verði reynt að virkja sem flesta bæjarbúa til þátttöku.
Samkvæmt fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2016 eru áætlaðar kr. 540.000 í hátíðarhöldin.
Er hér tækifæri fyrir félagasamtök að nýta sér þetta sem fjáröflun.
Umsóknum skal skila inn til Kristins J. Reimarssonar, deildarstjóra fræðslu-, frístunda– og menningarmála á netfangið kristinn@fjallabyggd.is , í síðasta lagi mánudaginn 4. apríl næstkomandi.