Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar hefur lagt til að flytja grunnskólastig Árskógarskóla yfir í Dalvíkurskóla frá og með haustinu 2026. Sé þetta gert með hagsmuni barnanna að leiðarljósi en fækkun barna hefur verið á grunnskólastigi Árskógarskóla. Með þessu verði betur komið til móts við þarfir barnanna bæði námslega og félagslega.

Þá er lagt áherslu á að leikskóli verði áfram starfræktur í Árskógarskóla, en fastráðnu starfsfólki á grunnskólastigi skólans verðið boðin tilfærsla í starfi innan fræðslustofnanna Dalvíkurbyggðar.