Hollvinafélags Kvíabekkjarkirkju í Ólafsfirði hefur óskað er eftir föstu fjárframlagi frá Fjallabyggð næstu þrjú árin til uppbyggingar og endurbóta á Kvíabekkjarkirkju.
Fjallabyggð hefur á liðnum árum komið að verkefninu með styrkveitingum og hefur lýst yfir áhuga á áframhaldandi aðkomu að þeim hluta verkefnis Hollvinafélagsins er lýtur að uppbyggingu Kvíabekkjar sem sögu- og áfangastaðar í Ólafsfirði.