Annað mótið í vikulegu mótaröðinni hjá Golfklúbbi Siglufjarðar fór fram síðastliðinn miðvikudag. Það voru 14 kylfingar mættir til leiks á mótinu þann 18. júní síðastliðinn. Keppt er í punktakeppni með forgjöf í tveimur flokkum eins og undanfarin ár.

Í B flokki var Ólafur Guðbrandsson með 20 punkta í 1. sæti. Erla Gunnlaugsdóttir var í 2. sæti með 18 punkta.  Í A flokki var Sigurgeir H. Ólafsson í 1. sæti með 19 punkta. í 2. sæti var Ása G. Sverrisdóttir með 16 punkta.

Punktar á móti í báðum flokkum: