Halldór Ingvar Guðmundsson markmaður Knattspyrnufélags Fjallabyggðar var í viðtali hjá okkur eftir að Íslandsmótinu í 2. deild karla í knattspyrnu lauk. Dóri hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár og er einn af fyrirliðum liðsins síðustu árin. Hann lék þó aðeins 14 af 20 leikjum Íslandsmótsins auk tveggja bikarleikja. Dóri meiddist í leik í haust og kom því varamarkmaður liðsins sterkur inn í þá leiki sem eftir voru. Dóri er einn af uppöldu leikmönnum KF og lék upp yngri flokkana með KS og KS/Leiftri. Hann lék svo sinn fyrsta meistaraflokks leik með KS/Leiftri árið 2007, þá aðeins 15 ára gamall. Tveimur árum síðar var hann búinn að eigna sér stöðuna og lék 21 leik það sumarið fyrir meistaraflokk. Dóri hefur núna leikið 204 leiki í deild- og bikarleikjum með KF, KS og KS/Leiftri auk 98 leikja í deildarbikar, Norðurlandsmótinu og annara æfingamóta. Þá var Dóri þjálfari liðsins í þrjá leiki árið 2016. Dóri starfar sem íþróttakennari við Grunnskóla Fjallabyggðar og stundar nám við Háskólann á Akureyri. Fleiri viðtöl við leikmenn KF má lesa hér á vefnum.
Viðtal – Halldór Ingvar Guðmundsson hjá KF
Hvert var markmið liðsins og áherslur þjálfarans fyrir Íslandsmótið eftir að hafa unnið sæti í 2. deildinni í ár?
Markmiðið var að enda eins ofarlega og geta liðsins bauð upp á og var 6. sæti held ég bara mjög fín niðurstaða. Veit að margir bjuggust við að við myndum vera í vandræðum í sumar. Skilaboðin frá Milo þjálfari voru skýr, hlaupiði meira en andstæðingarnir og gefið allt í leikinn og Dóri reyndu að fá ekki á þig mark. Þetta síðasta gekk reyndar aldrei upp.
KF missti nokkra öfluga leikmenn fyrir mótið og fékk nokkra erlenda leikmenn á móti í bland við yngri leikmenn. Var ekki talsverð óvissa með hversu sterkt liðið yrði í sumar?
Vissulega misstum við mjög öfluga leikmenn í vetur en eins og alvöru lið gera þá stigu aðrir upp í stærra hlutverk. Einnig vorum við mjög sáttir með þá útlendinga sem við fengum og stóðu þeir sig gríðarlega vel.
Ertu sáttur með þitt framlag í sumar, með 16 leiki í deild- og bikarkeppni?
Ég er þokkalega sáttur með mitt framlag í sumar þó alltaf megi ræða eitt og eitt atriði eins og hjá öllum markmönnum.
Var einhver leikur í sumar sem þér fannst vera eftirminnilegur, eða eitthvað atvik í leik?
Kríli (Kristófer Andri)með sigurmarkið á 90+ mín. í bikarleiknum á móti Dalvík á hinum gríðarlega sterka heimavelli Dalvíkinga, fátt sem toppaði það í sumar. Einnig þegar Hrannar þrusubombaði boltanum í vinkilinn á sama velli í deildinni. Svo þegar Oumar ákvað að leggja hann í vinkilinn á Ólafsfirði einnig á móti Dalvík.
KF fékk á sig tæplega 2 mörk í leik í deildinni í sumar, eða 39 mörk í 20 leikjum, hefði eitthvað mátt betur fara í vörninni, markvörslu eða þéttleika liðsins, eða er þetta ásættanlegt fyrir nýliða í deildinni?
Ég get ekki sagt að það sé ásættanlegt að fá á sig tæplega 2 mörk í hverjum leik. Oft á tíðum fannst mér liðið vera að verjast vel sem ein heild, en einstaklingsmistökin fóru ílla með okkur og tel ég það helst vera útaf því að við erum með gríðarlega ungt lið.
Niðurstaðan í ár langt og skrýtið mót og KF endaði í 6. Sæti, eru leikmenn ekki sáttir með tímabilið í heild sem nýliðar, sem hægt er að byggja ofan á fyrir næsta tímabil?
6. sæti er bara mjög fín niðurstaða fyrir okkur og mjög sanngjörn. En við verðum að passa okkur á því að byggja ofan á þennan árangur og alls ekki slaka á í vetur.
Nýju erlendu leikmennirnir áttu mjög gott fyrsta tímabil og sáu um markaskorun liðsins. Var ekki mikill fengur fyrir KF að fá Oumar og Sachem í vor?
Oumar og Sachem stóðu sig báðir gríðarlega vel í sumar og voru mjög drjúgir fyrir okkur í vítateig andstæðingana. Einnig fannst mér Ljubomir vinur minn vera miklu miklu betri í ár heldur en öll hin árin.
Hafði það áhrif á ykkur þá leiki sem engir áhorfendur voru leyfðir í sumar?
Það voru nú ekki margir leikir sem ég spilaði án áhorfenda, það er alltaf miklu skemmtilegra að spila leikina þegar það eru áhorfendur og sérstaklega þegar Konni Gotta og Ásgeir Frímans rífa mannskapinn með sér.
Þú varðst fyrir meiðslum í September í leik á móti Njarðvík. Hvað gerðist og hvernig er staðan á þér núna?
Það atvikaðist þannig að það kemur lá fyrirgjöf inn í teiginn ég skutla mér á boltann og á sama tíma sparkar leikmaður Njarðvíkur framan á hendina með þeim afleiðingum að ég puttabrotna ílla á einum fingri og liðirnir í öðrum fingri skaddast einnig ílla. Staðan á þessu núna er að puttinn sem brotnaði er að gróa ágætlega vel en hinn fingurinn er enn mjög aumur og er enn þá nokkuð langt í land hjá mér.
Getur þú nefnt 2-3 leikmenn sem voru liðinu mikilvægir í sumar?
Hrannar var geggjaður í þeim leikjum sem hann náði að vera með í einnig sannaði Jonni (Jón Óskar) gildi sitt í liðinu þegar leið á mótið. Svo voru Oumar, Sachem og Ljubomir gríðarlega sterkir fyrir okkur í sóknarleiknum.