Víðtæk bilun er í símkerfi Akureyrarbæjar og unnið er að viðgerð. Bilunin nær meðal annars til þjónustuvers Akureyarbæjar og ekki er hægt að hringja í aðal númerið að svo stöddu.
Hægt er að ná sambandi við starfsfólk bæjarins í gegnum rafrænar þjónustuleiðir, eins og netspjallið, akureyri@akureyri.is og ábendingavefinn á akureyri.is. Einnig er hægt að bóka viðtal hjá ýmsum fulltrúum og ráðgjöfum á akureyri.is/boka.
Þetta kemur fram í frétt sem birt var í morgun á akureyri.is