Þrjú tilboð bárust þegar Hafnarsjóður Skagafjarðar óskaði eftir tilboðum í verkefni fyrir nýjan 300 metra langan brimvarnargarð við Norðurgarð í Sauðárkrókshöfn. Hæsta tilboðið átti Steypistöð Skagafjarðar, eða rúmlega 1.2 milljarður. Suðurverk bauð 767 milljónir en Víðimelsbræður ehf. á Varmahlíð buðu 689 milljónir, en áætlaður verktakakostnaður var 729 milljónir rúmlega.
Í tilboðinu var einnig upptekt úr sandfangara á um 90 metra kafla.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
|
Steypustöð Skagafjarðar ehf., Sauðárkróki
|
1.253.925.957
|
171,9
|
563.993.542
|
|
Suðurverk hf., Kópavogur
|
767.098.762
|
105,2
|
77.166.347
|
|
Áætlaður verktakakostnaður
|
729.487.100
|
100,0
|
39.554.685
|
|
Víðimelsbræður ehf., Varmahlíð
|
689.932.415
|
94,6
|
0
|