Íþróttamiðstöð Siglufjarðar var lokuð vegna viðhalds frá 21.- 28. október síðastliðinn vegna viðhalds á sturtuklefum og sundlaugarbakka. Nýtt gólfefni hefur verið sett í sturturýmin, sundlaugarbakkinn pússaður upp og lýsingin í sundlaugarsalinn endurbætt með nýjum ljósum.

Eins og sjá má á myndum tókst vel til og er nú opið í sund fyrir alla gesti aftur.