Hin margrómaða og einstaka Vetrarhátíð við Mývatn verður 1. – 10. mars 2024.

Vetrarhátíð við Mývatn er einstakur viðburður á landsvísu þar sem fjölbreyttar hefðbundnar og óhefðbundnar vetraríþróttir eru stundaðar úti í náttúrunni. 

Frábær tilboð í gistingu, bað og vélsleðaferðir í boði á meðan hátíðin stendur yfir. Lærðu að dorga með heimamönnum, kíktu á sleðahundana hjá Snow dogs, fáðu þér eitthvað gott að borða og skoðaðu náttúruundur svæðisins. Það er af nógu að taka! Gönguskíðaspor verða víðsvegar um svæðið og skíðalyftan í Kröflu opin svo lengi sem að veður og færð leyfir.

Fólk er hvatt til þess að taka með sér gönguskó, gönguskíði og svigskíði og njóta alls sem svæðið hefur upp á að bjóða á sínum forsendum. 

Dagskrá:

Föstudagur 1. mars

16:30 – Hópreið um Mývatn. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald.

19:00-21:00 – Föstudagsfjör í Jarðböðunum – tónlist og enn meiri happy hour!

20:00 – Leiksýningin Í gegnum tíðina eftir Hörð Þór Benónýsson sýnd í Breiðumýri.

21:30 – 23:30 – Ágúst Þór trúbador spilar í Vogafjósi! Frítt inn.

Laugardagur 2. mars

9:30 – 11:00 – Opinn tími fyrir börn og fullorðna í klifri í Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð í boði Mývetnings.

10:00 – 13:00 – Skíðasvæðið í Kröflu opið.

10:00 – 16:00 – Mývatn Open – Hestar á Ís á Stakhólstjörn, Skútustöðum.

12:00 – Mývatnssleðinn á Álftabáru!

12:00 – 16:00 – Handverks-, flóa- og bændamarkaður á Gestastofu Gígs á Skútustöðum!

14:00-17:00 – Kaffihlaðborð á Sel-Hótel Mývatn.

16:00 – Leiksýningin Í gegnum tíðina eftir Hörð Þór Benónýsson sýnd í Breiðumýri.

19:45 – 22:00 – Söngvakeppnin 2024 verður sýnd á skjánum í Gamla Bænum.

Sunnudagur 3. mars

10:30 – 12:00 – Opinn tími í blak fullorðinna í Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð í boði Mývetnings.

12:00 – 14:00 – Frítt gönguskíðanámskeið á Skútustöðum. Skráning hjá visitmyvatn@gmail.com

13:00 – 15:00 – Fjölskyldudagur í Vaglaskógi. Opið skíðagönguspor. Ungmennafélagið Bjarmi stendur fyrir dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Skógarstígur/ratleikur, leikir á gönguskíðum fyrir alla aldurshópa, Snjókarlakeppni. Kaffi og kökusala!

Mánudagur 4. mars

16:30 – 19:00 – Skíðasvæðið í Kröflu opið.

20:00 – 21:30 – Opinn badminton tími í Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð.

18:00 – 20:00 – Kvenfélag Fnjóskdæla heldur kjötsúpukvöld í Skógum.

18:30 – 20:30 – Partý í sundlauginni í Stórutjarnaskóla.

Þriðjudagur 5. mars

18:00 – 20:00 – Pizza hlaðborð í Dalakofanum.

20:00 – 21:30 – Spilum félagsvist í Dalakofanum undir stjórn Halla Bó. Vinningar fyrir stigahæstu keppendurna.

Miðvikudagur 6. mars

13:00 – 14:00 – Opinn tími í boccia í Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð.

Safnadagur. Skoðaðu söfnin í sveitarfélaginu.

14:00 – 16:00 – Opið í Fuglasafni Sigurgeirs í Ytri-Neslöndum.

16:00 – 18:00 – Grenjaðarstaður bíður gestum og gangandi í heimsókn!

16:00 – 18:00 – Persónulega safnið í gamla fjósinu við Einarsstaði bíður gestum og gangandi í heimsókn!

16:30 – 19:00 – Skíðasvæðið í Kröflu opið.

18:00 – 20:00 – Taco hlaðborð á

Sel-Hótel Mývatn.

Fimmtudagur 7. mars

16:00 – 18:00 – Listasýniningin “Náttúra Þingeyjarsveitar” opnuð og erindi frá starfsmanni háskólasetursins á Gestastofu Gígs, Skútustöðum.

16:00 – 18:00 – Persónulega safnið í gamla fjósinu við Einarsstaði opið gestum og gangandi!

16:30 – 18:00 – Skíðasvæðið í Kröflu opið.

20:00 – Barsvar í Jarðböðunum við Mývatn!

20:00 – Leiksýningin Í gegnum tíðina eftir Hörð Þór Benónýsson sýnd í Breiðumýri.

Föstudagur 8. mars

11:00-15:00 – Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands við Fuglasafn Sigurgeirs, Neslöndum.

19:00 – 21:00 – Föstudagsfjör í Jarðböðunum við Mývatn – tónlist og enn meiri happy hour!

20:00 – Tónleikar með Birki Blæ í Þorgeirskirkju. Frítt inn!

Laugardagur 9. mars

9:30 – 11:00 – Opinn tími fyrir börn og fullorðna í klifri í íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð í boði Mývetnings.

10:00 – 16:00 – Íslandsmeistaramót í Snjókrossi í Kröflu. Mývetningur verður með veitingasölu!

10:00 – 15:00 – Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands við Fuglasafn Sigurgeirs, Neslöndum.

15:00 – 17:00 – Lærðu að dorga með veiðifélagi Mývatns. Gengið út á ísinn til móts við Berjaya Hotel Mývatn.

21:00 – 22:00 – Uppistand á Gamla Bænum með Arnóri Daða! Ekki missa af þessu. Frítt inn!

Sunnudagur 10. mars

10:30 – 12:00 – Opinn tími í blak fullorðinna í Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð í boði Mývetnings.

12:00 – 14:00 – Fjölskyldudagskrá í Reykjahlíð með foreldrafélagi Reykjahlíðarskóla.

12:00 – 14:00 – Snjósleðaferð með Geo Travel fyrir alla fjölskylduna. Allir snjósleðar velkomnir, nýjir og gamlir! Mikilvægt að skrá þátttöku hjá info@geotravel.is.

15:00 – 16:30 – Yoga Nidra tími með Rósu Matt í Jarðböðunum við Mývatn. Frítt inn, takmarkað pláss!

20:00 – eiksýningin Í gegnum tíðina eftir Hörð Þór Benónýsson s