Vesturfarasetrið á Hofsósi er stórmerkilegt safn og góður viðkomustaður á leið til Fjallabyggðar. Setrið opnar nú 1. júní og verður opið frá kl. 11-18 til 1. september. Mæli með því að fólk stoppi þarna sé það á þessari leið.  Vesturfarasetrið á Hofsósi var stofnað 1996 til heiðurs Íslendingum sem fluttust til Norður Ameríku á árabilinu 1850-1914. Markmið Setursins er að segja sögu fólksins sem fór og efla tengslin milli afkomenda þeirra og frændfólksins á Íslandi. Vesturfarasetrið býður upp á fjórar sýningar í þremur húsum auk ættfræðiþjónustu, bókasafn, íbúð fyrir fræðimenn og fleira.

Þá er einnig vert að minnast á sundlaugina á Hofsósi sem er með frábært útsýni og einstök hönnun.

Sundlaugin á Hofsósi