Það var góð mæting þegar íbúum var boðið upp á grillaðar pylsur og gos við grunnskólann á Siglufirði í gærkvöldi og veður var mun betra en fyrstu spár sögðu til um. Það var um 14 stiga hiti þegar leið á daginn í gær og allir úti að njóta blíðunnar.
Myndir með fréttinni koma frá fésbókarsíðu Síldarævintýris á Siglufirði.
Fjölmargir viðburðir eru einnig í dag, föstudaginn 31. júlí. Mikil tónlistarveisla verður á Ráðhústorginu á Siglufirði frá kl. 20:00. Kvöldið endar svo með flugeldasýningu kl.23:30.




