Mikil tónlistardagskrá var í gærkvöldi á Siglufirði á Ráðhústorginu og víðar. Ástarpungarnir og Jón Jósep Snæbjörnsson(Jónsi) spiluðu í þrjá tíma fjölbreytt lög og var fjölmenni svæðinu. Á undan þeim var skrúðganga og brenna. Allt hefur farið vel fram á Siglufirði og engin mál verið skráð samkvæmt Lögreglunni. Hitinn í nótt fór lægst í 3,1 gráður frá kl. 01:00.Klukkan 8:00 í morgun var hitinn að nálgast 10 gráður og stefnir í góðan og bjartan dag. Veðurspáin einnig góð næstu daga.
Í dag, 2. ágúst heldur Síldarævintýrið áfram. Dagskrá hefst kl. 12:00 í Íþróttahúsinu, Hoppland verður við höfnina og Sagnasigling og veiðiferð með Sóta Summit á Örkinni verður kl.13:00.
Lifandi tónlist verður við Aðalgötuna frá kl. 14-16. Hrafnhildur Helgadóttir sýnir í Kompunni og einnig er sýning og opnun í Alþýðuhúsinu.
Froðufjör Slökkviliðsins hefst kl. 15:30 við Grunnskólann. Dagskrá verður á Ljóðasetrinu kl. 16:00.
Segull 67 býður börnum á hestbak þar sem teymt verður undir kl.16:30 ásamt ýmsu öðru.
Nokkrar aðsendar myndir frá gærkvöldinu fylgja fréttinni.






