Útgerðarfyrirtækið Gjögur hf. greiddi starfsfólki sínu í landvinnslu Gjögurs á Grenivík kr. 300 000,- auk orlofs í afkomubónus um sl. mánaðarmót. Upphæðin miðast við fullt starf og greiðist hlutfallslega út frá starfshlutfalli og starfstíma á árinu. Tilefnið er góð afkoma landvinnslunnar á Grenivík á árinu. Einnig fá starfsmenn veglega jólagjöf frá fyrirtækinu.