Vegagerðin hefur óskað eftir leyfi til breytinga á framkvæmdum við efsta hluta Skarðsvegar á Siglufirði. Breytingin felur í sér hækkun vegarins um 5 metra frá upphaflegri áætlun.  Óskað var eftir heimild til þess að opna námu við enda bílaplansins. Áætluð efnisþörf er 28.000 m3.  Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar samþykkti erindið en Helgi Jóhannsson hjá H-listanum sat hjá við afgreiðslu málsins.

Helgi Jóhannsson frá H-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

Verið er að hækka bílastæði og veginn að því um 5 metra til að minnka hæðabilið á milli bílastæðis og væntanlegs skíðaskála. Til þess þarf að stækka efnisnámu á svæðinu og taka úr henni 28 þús rúmmetra. Það finnst mér mikið í lagt og aukning á kostnaði og ekki liggi fyrir hvort fjármagn fáist í verkið. Það hlýtur að vera hægt að leysa aðkomumál á auðveldari hátt og ódýrari og minnka þar með rask á svæðinu.

helgi jóhannsson – Héðinsfjörður – Fréttavefur í Fjallabyggð