Vegagerðin vinnur að undirbúningi endurbyggingar Vatnsnesvegar (711) frá Skarði í vestri að Hringvegi í austri og Síðuvegar frá Hringvegi að Vatnsnesvegi. Framkvæmdakaflinn er í heild um 65 km langur.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum verði skipt í sex áfanga og að þær standi yfir á árunum 2027–2034. Samkvæmt núverandi áætlun verður fyrsti áfanginn unninn á árunum 2027–2028 og stefnt er að útboði hans í byrjun árs 2027.
Á næstu dögum hefjast formlegar viðræður við landeigendur vegna fyrsta framkvæmdakaflans. Samhliða heldur áfram undirbúningur síðari áfanga verkefnisins.
Framkvæmdir við Vatnsnesveg hafa lengi verið mikið hagsmunamál íbúa á svæðinu.