Skólarnir á Norðurlandi utan Akureyrar kepptu í 8. riðli í Skólahreysti í dag. Keppnin fór fram á Akureyri og keppt var í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðabraut. Varmahlíðarskóli vann nokkuð örugglega, annað árið í röð með 57,50 stig. Grunnskólinn Austan Vatna var í öðru sæti með 47 stig og Grunnskóli Fjallabyggðar í 3. sæti með 35,50 stig. Grunnskóli Fjallabyggðar var í 7. sæti á síðasta ári í sömu keppni með 35 stig, en í ár voru það 35,5 stig og 3. sæti.
Grunnskóli Fjallabyggðar var í 3. sæti í upphífingum, neðsta sæti í armbeygjum, 5 .sæti í dýfum næst neðsta sæti í hreystigreip og 2. sæti í hraðbraut. Hægt er að sjá öll úrslit á skólahreysti.is.
Skóli | Gildi | Stig |
---|---|---|
Varmahlíðarskóli | 57.5 | 57,50 |
Grunnskólinn austan Vatna | 47 | 47,00 |
Grunnskóli Fjallabyggðar | 35.5 | 35,50 |
Borgarhólsskóli | 35 | 35,00 |
Dalvíkurskóli | 33.5 | 33,50 |
Húnavallaskóli | 32 | 32,00 |
Naustaskóli | 30 | 30,00 |
Grunnskólinn á Þórshöfn | 28 | 28,00 |
Hrafnagilsskóli | 19.5 | 19,50 |
Þelamerkurskóli | 12 | 12,00 |