Um helgina var útimarkaður fyrir utan Ljóðasetur Íslands á Siglufirði, en setrið stendur við Túngötuna.

Ýmis varningur var til sölu og rann ágóðinn til styrktar setursins.  Kílóverð á bókum var 1000 kr og einnig voru fjölmargar ljóðabækur á tilboði.  Það verður hægt að kaupa bækur hjá Ljóðasetrinu næstu daga og gera góð kaup.

Þá stendur til að mála og skreyta norðurgafl hússins og verður áhugavert að sjá hvað stendur til að gera þar.

 

Meðfylgjandi myndir eru frá Ljóðasetri Íslands og eru birtar með góðfúsu leyfi.