Ferðafélag barnanna kynnir í samstarfi við Ferðafélag Skagfirðinga og Drangeyjarferðir útilífsdag barnanna þann 7. júlí milli kl. 13-16.. Útilífsdagur barnanna er að norskri fyrirmynd, ,,Kom deg ut – dagen”, sem er haldinn ár hvert víðsvegar í Noregi. Tilgangur dagsins er að börn fái áhuga á útilífi og skagfirskri náttúru.  Einnig að þau læri að nýta sér það hráefni sem náttúran hefur upp á að bjóða.

Dagskrá dagsins:

  • Kennsla í útieldun
  • Ratleikur
  • Þrautir
  • Ævintýraleikir
  • Málað á steina og viðarspýtur
  • Föndrað úr efni náttúrunnar
  • Fangað augnablikið með ljósmynd og örstutt kennsla í hvernig best er að fanga myndefni í náttúrunni

Hvað þarf að hafa með þennan dag:

  • Hráefni til útieldunar
  • Myndavél
  • Plastbox
  • Áttaviti
  • Kíkir
  • Vasahnífur til að tálga
  • Fatnaður eftir veðri
  • Stígvél

Staðsetning: Reykir á Reykjaströnd í Skagafirði. Hittumst við Grettis Café.