Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2014.
25 umsóknir bárust í sjóðinn, samtals að upphæð um 11.000.000 kr. en úthlutað var að þessu sinni úr sjóðnum 1.800.000 kr.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni:
| Umsækjandi | Verkefni | Úthlutað |
| Sóknarnefnd Upsasóknar | Tónleikahald í tilefni 400 ára árstíð Hallgríms Péturssonar | 75.000 |
| Íris Ólöf Sigurjónsdóttir | Sýning á textílverkum á vinnustofu | 75.000 |
| Tónlistarfélag Dalvíkur | Svarfdælskur mars, málþing | 100.000 |
| Menningarfélagið Berg | Klassík í Bergi | 100.000 |
| Karlakór Dalvíkur | Tónleikahald | 100.000 |
| Mímiskórinn | Tónleikahald | 100.000 |
| Menningarfélagið Berg | Barnamenningarhátið | 150.000 |
| Kvenfélagð Tilraun | Styrkur til heimildar- og ljósmyndavinnu við afmælisritið | 150.000 |
| Ingibjörg Hjartardóttir | Skrif á skáldsögunni Dalalíf | 150.000 |
| Guðbjörg Antonsdóttir | Gera hluta ritverka Antons Guðlaugssonar tilbúna til útgáfu | 150.000 |
| Salka kvennakór | Tónleikahald og útgáfa lags og myndbands | 200.000 |
| Kór Dalvíkurkirkju | Upptaka á íslenskum hátíðarsöng Bjarna Þorsteinssonar | 200.000 |
| Edik ehf | Sjóslysið 1963, heimildamyndin BROTIÐ | 250.000 |