Stjórn Akureyrarstofu hefur úthlutað styrkjum til þrettán fjölbreyttra verkefna í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri. Í ár verður hátíðin allan aprílmánuð og eru einstaklingar, hópar, fyrirtæki og stofnanir hvött til almennrar þátttöku. Áhugasömum er bent á nánari upplýsingar á barnamenning.is. Opið er fyrir umsóknir um þátttöku í Barnamenningarhátíð á Akureyri til og með 21. mars.
Styrkt verkefni hátíðarinnar í ár eru:
- Myndlistarverkstæði Gilfélagsins / Gilfélagið
- Júlí Blaer / Stelpuklúbburinn
- Podcast smidja Felak og UH / Félagsmiðstöðvar Akureyrar, Ungmennahúsið
- Stulli stuttmyndahátíð / Ungmennahúsið, Félagsmiðstöðvar Akureyrar
- Rokkandi rapp / Ungmennaráð Akureyrar
- Smiðjur í snjóskúlptúrgerð í Hlíðarfjalli / Listhópurinn RÖSK
- Höfundamót í Hofi – bókaormar og rithöfundar spjalla / Menningarfélag Akureyrar ses.
- Hæfileikakeppni Akureyrar / Félagsmiðstöðvar Akureyrar
- Braggaparkið – Opnir Dagar og Hjólabretta Hönnunar Keppni / Eiki Helgason ehf.
- Ratleikur á Amtsbókasafninu / Félagsmiðstöðvar Akureyrar, Amtsbókasafnið á Akureyri
- Orgelkrakkar / Listvinafélag Akureyrarkirkju
- Snjallsmiðja á Amtsbókasafninu / Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Amtsbókasafnið á Akureyri
- Dönsum í takt við myndlistina / Listasafnið á Akureyri