Páskaparamót Blakfélags Fjallabyggðar fór fram í gær, föstudaginn langa, í Íþróttahúsinu á Siglufirði. 18 pör tóku þátt og var uppselt í mótið.
Mikil stemmning var á mótinu og úrslit voru þau að Eduard Bors og Tinna unnu með fullt hús stiga 120 stig. Í 2. sæti urðu Jakob Auðun og Bryndís með 116 stig og í 3. sætið voru Vitor Vieira Thomas og Alma með 115 stig.
Þess má geta að Jakob og Vitor eru knattspyrnumenn hjá KF, en eru sannarlega liðtækir í blakinu líka.