Opna Ísfélagsmótið hjá Golfklúbbi Fjallabyggðar fór fram 29. ágúst síðastliðinn á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði. Alls tóku 21 kylfingur þátt í mótinu að þessu sinni. Keppt var í 18 holu punktakeppni.
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki. Einnig voru verðlaun fyrir lengsta teighöggið og næst holu í báðum flokkum.
Boðið var upp á vöfflur í golfskálanum að móti loknu.
Úrslit í karlaflokki:
1.sæti Björn Kjartansson GFB 36 punktar
2.sæti Ármann Viðar Sigurðsson GFB 35 punktar
3.sæti Kristófer Beck Elísson GFB 34 punktar
Kvennaflokkur:
1.sæti Dagný Finnsdóttir GFB 34 punktar( betri s.9)
2.sæti Marsibil Sigurðardóttir GHD 34 punktar
3.sæti Snjólaug Anna Traustadóttir GFB 32 punktar
Lengsta teighöggið:
Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir GFB
Johann Már Sigurbjörnsson GKS
Næst holu:
Dagný Finnsdóttir GFB
Þorleifur Gestsson GFB
Myndir koma frá GFB.


