Minningmót Golfklúbbs Fjallabyggðar fór fram í dag, mánudaginn 3.ágúst á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði. Í ár voru 52 kylfingar sem mættu til leiks og var full skráning í mótið.
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki, besta skor og einnig nándar verðlaun í báðum flokkum.
Að móti loknu var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð sem félagskonur GFB sáu um. Hjörtur Sigurðsson úrGA var í 1.sæti karla með 37 punkta. Birgitta Guðjónsdóttir frá GA var í 1. sæti í kvennaflokki með 39 punkta og var næst holu í kvennaflokki. Óli Björn Bjarkason frá GKG var með besta skorið, 65 högg.
Úrslit:
Karlaflokkur:
1.sæti Hjörtur Sigurðsson GA 37 punktar
2. sæti Sturla Sigmundsson GFB 36 punktar
3. sæti Óli Björn Bjarkason GKG 35 punktar
Kvennaflokkur:
1.sæti Birgitta Guðjónsdóttir GA 39 punktar
2. sæti Marsibil Sigurðardóttir GHD 38 punktar
3. sæti Björg Traustadóttir GFB 36 punktur
Besta skor:
Óli Björn Bjarkason GKG 65 högg
Næst holu 2/11:
Sturla Sigmundsson GFB 53 cm
Birgitta Guðjónsdóttir GA 33 cm
Næsta mót GFB er Opna Ísfélagsmótið sem verður haldið sunnudaginn 9. águst.
Myndir og upplýsingar frá GFB.


