Meistaramót Golfklúbbs Fjallabyggðar fór fram dagana 6.-11 júlí á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði. Keppt var í 8 flokkum í höggleik, en 3. flokkur karla og kvenna léku í punktakeppni. 35 kylfingar voru skráðir til leiks á mótinu. Flokkarnir spiluðu mismargar holur í keppninni.
Sigurbjörn Þorgeirsson var klúbbmeistari karla og var á 200 höggum. Í 2. sæti í meistaraflokki karla var Bergur Björnsson á 217 höggum. Ármann Viðar Sigurðsson var á 224 höggum í 3. sæti.
Guðrún Sigurbjörnsdóttir er klúbbmeistari kvenna en hún var á 224 höggum í 1. flokki kvenna. Næst var Sara Sigurbjörnsdóttir í 2. sæti á 247 höggum og Dagný Finnsdóttir í 3. sæti á 247 höggum.
Þorvaldur Guðbjörnsson var í 1. sæti í 1. flokki karla á 240 höggum.
Smári Sigurðsson var í 1 .sæti í 2. flokki karla á 201 höggi. Guðrún Unnsteinsdóttir var í 1. sæti í 2. flokki kvenna á 213 höggum.
María Jóhannsdóttir var í 1. sæti kvenna í 3. flokki á 49 punktum. Alex Helgi Óskarsson var í 1. sæti í 3. flokki karla á 53 punktum.
Marínó Örn Óskarsson var í 1. sæti í flokki unglinga á 81 höggi á 18 holum.
Guðbjörn Jakobsson sigraði í öldungaflokki karla á 162 höggum.
1. flokkur kvenna
1.flokkur karla
2. flokkur karla
2. flokkur kvenna
3. flokkur kvenna
3. flokkur karla
Unglingaflokkur
Öldungaflokkur karla








