Meistaramóti Golfklúbbs Siglufjarðar lauk um síðstliðna helgi en leikið var á Hólsvelli. Leiknar voru 54 holur, fyrstu 18 holurnar mátti leika frá mánudegi til fimmtudags, 18 holur voru síðan spilaðar á föstudag og loka 18. holurnar fóru fram á laugardag.

Keppnin um efstu sætin var jöfn og spennandi en þeir sem voru í forystu fyrir lokadaginn héldu forystunni til loka móts. Keppnin var þó sérstaklega spennandi í kvennaflokknum þar sem munaði eingöngu tveimur höggum á fyrsta og öðru sæti. Fleiri myndir hér.

Úrslit urðu eftirfarandi:

1 flokkur karla:
1. sæti á 247 höggum Ingvar K. Hreinsson
2. sæti á 253 höggum Þorsteinn Jóhannsson
3. sæti á 255 höggum Sævar Örn Kárason

1. flokkur kvenna:
1. sæti á 292 höggum Hulda Magnúsardóttir
2. sæti á 294 höggum Ólína Þórey Guðjónsdóttir
3. sæti á 331 höggi Ragnheiður Ragnarsdóttir

2 flokkur karla:
1. sæti á 272 höggum Kári Arnar Kárason
2. sæti á 278 höggum Arnar Freyr Þrastarson
3. sæti á 291 höggi Ólafur Þór Ólafsson

wp_20150710_19_31_01_pro wp_20150710_19_25_47_pro

Mynd8ir: gks.fjallabyggd.is