Fjarðarhlaupið 2024 fór fram í gær í Fjallabyggð við krefjandi aðstæður. Alls voru 145 keppendur skráðir til leiks, 129 voru ræstir út og 127 kláruðu sín hlaup.
Í 32km hlaupinu frá Siglufirði til Ólafsfjarðar sigraði Sigurjón Ernir Sturluson á nýju brautarmeti 2:53:22, annar varð Grétar Örn Guðmundsson, 03:06:43 og þriðji varð Baldvin Ólafsson, 03:22:48
Í kvennaflokki sigraði Rannveig Oddsdóttir á tímanum 04:03:16, önnur varð Simona Vareikaite, 04:21:34 og þriðja varð Björk Óladóttir, 04:40:51
Í 18km hlaupinu úr Héðinsfirði til Ólafsfjarðar sigarði Guðlaugur Ari Jónsson á tímanum 1:35:51, annar varð Atli Sveinbjörnsson, 01:42:52 og þriðji varð Magnús Finnsson, 1:49:40
Í kvennaflokki sigraði Ingibjörg Ester Ármannsdóttir á tímanum 02:06:40, önnur varð Auður Kristjánsdóttir 02:16:23 og þriðja varð Jónína Kristjánsdóttir 2:20:28.
Þá var einnig boðið uppá 5 km og 10 km skemmtiskokk og barnahlaup 0,5 km, 1 km og 1,5 km og var það í miðbæ Ólafsfjarðar.
Dregin voru út úrdráttarverðlaun frá Hótel Hálönd, Skógarböðunum, Hleðslu og Craft. Allir keppendur fengu hamborgara frá Kjarnafæði, brauð frá Aðalbakarí, Leppinn og Klaka frá RJC, Kaldi og Segull67 voru einnig í boði fyrir keppendur.
Úrslit má finna á www.timataka.net