Frjálsíþróttafólk í Skagafirði hélt uppskeruhátíð sína laugardaginn 8. nóvember síðastliðinn. Var þar kynnt val á „Frjálsíþróttafólki Skagafjarðar 2014“, og voru einnig efnilegustu unglingarnir heiðraðir og fjölmargar viðurkenningar veittar.

Viðurkenningar UMSS:

  • Frjálsíþróttakarl UMSS 2014:  Jóhann Björn Sigurbjörnsson.
  • Frjálsíþróttakona UMSS 2014:  Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir.
  • Efnilegasta stúlkan 2014:  Vala Rún Stefánsdóttir.
  • Efnilegasti pilturinn 2014:  Dalmar Snær Marinósson.

Viðurkenningar Tindastóls:

  • Besta ástundun 11-14 ára:  Stefanía Hermannsdóttir.
  • Besta ástundun 15 ára og eldri: Sveinbjörn Óli Svavarsson.
  • Mestu framfarir 15 ára og eldri:  Rúnar Ingi Stefánsson.
  • Óvæntasta afrek 15 ára og eldri:  Jóhann Björn Sigurbjörnsson.

Íslandsmeistaratitlar 2014:

MÍ innanhúss:

  • Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, hástökk kvenna.
  • Guðjón Ingimundarson, 60m grind 20-22 ára.

MÍ utanhúss:

  • Jóhann Björn Sigurbjörnsson, 100m og 200m hlaup karla.
  • Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, sjöþraut kvenna, og 100m grind. 18-19 ára.
  • Daníel Þórarinsson, 100m, 200m og 400m hlaup 20-22 ára.
  • Guðjón Ingimundarson, 110m grind. 20-22 ára.
  • Linda Björk Valbjörnsdóttir, 800m og hástökk 20-22 ára.
  • Ísak Óli Traustason, 110m grind 18-19 ára.
  • Vésteinn Karl Vésteinsson, sleggjukast 15 ára.
  • Sveit UMSS: Sveinbjörn Óli, Guðjón, Ísak Óli og Daníel, 4x100m boðhlaup 20-22 ára.

Unglingalandsmótstitlar 2014:

  • Brynjólfur Birkir Þrastarson, langstökk 18 ára.
  • Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, 100m grind. 18 ára.
  • Vala Rún Stefánsdóttir, spjótkast 15 ára.

Íslensk aldursflokkamet 2014:

  • Jóhann Björn Sigurbjörnsson 100m hlaup 18-19 ára, 200m hlaup 18-19 ára og 20-22 ára.

Heimild: tindastoll.is