Mynd: Markaðsstofa Akureyrar / Auðunn Níelsson

Upplýsingamiðstöð ferðamanna verður opnuð í Hofi á Akureyri laugardaginn 1. apríl. Opið verður alla daga frá kl. 10-15 en afgreiðslutíminn lengist í kl. 8-16 yfir hásumarið (frá 1. júní til 31. ágúst).

Í upplýsingamiðstöðinni er fyrst og fremst lögð áhersla á að miðla upplýsingum til ferðamanna um Akureyri og næsta nágrenni en ferðaþjónustuaðilar um allt Norðurlandi eru hvattir til að koma með kynningarefni sitt í Hof svo sé hægt að segja frá öðrum helstu dásemdum landshlutans.

Á laugardag er von á fyrsta skemmtiferðaskipi ársins til Akureyrar. Það er skipið Bolette með rétt um 1.400 farþega og 600 manna áhöfn.

Það stefnir í metsumar hvað varðar komu skipa og farþega þeirra til Akureyrar. Spáð er um 25% fjölgun gesta með skemmtiferðaskipum frá því sem var fyrir heimsfaraldur Covid-19 eða um 185.000 gestum núna á móti 150.000 árið 2019. Skipakomum til Eyjafjarðar fjölgar um á að giska 40%. Þær voru 199 árið 2019 en verða um 280 í sumar með viðkomu á Akureyri, í Hrísey og Grímsey, og á Hjalteyri en þetta verður í fyrst sinn sem skemmtiferðaskip leggur leið sína til Hjalteyrar.

Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar.