S&A eignir ehf., landeigandi Leifsstaða 2 og rekstraraðili Hotel North, fyrirhugar frekari uppbyggingu hótels og íbúða til gistireksturs á landareign sinni í Eyjafjarðarsveit.  Leifsstaðir 2 eru í nokkuð brattri hlíð austan megin í dalnum skammt frá Akureyri.

Fyrirhuguð framkvæmd gerir ráð fyrir gistingu fyrir allt að 368 manns og byggingarmagni uppá
rúmlega 7.500 m².

Leifsstaðir 2 eru í Kaupangssveit, nokkuð þéttri sveita-, íbúðar- og frístundabyggð nyrst í Eyjafjarðarsveit. Þar stendur hús byggt árið 1930 auk viðbyggingar. Gamla íbúðarhúsið er rekið sem íbúðarhótel og í viðbyggingunni er matsalur og 7 herbergi. Einnig standa á svæðinu geymslur og reykhús. Hótelið er 607 m² með 11 herbergjum og 22 gistirúmum.
Nýlega hafa verið byggð 7 gistihýsi norðan við gamla íbúðarhúsið. Gistihýsin eru 7 og 56 m² hvert. Samtals eru þau með 28 gistirúmum.

 

Við núverandi aðstæður er rekin gisting á staðnum en um er að ræða stækkun á umfangi og gerir fyrirhuguð framkvæmd ráð fyrir gistingu fyrir allt að 368 manns og byggingarmagni sem nemur rúmlega 7.500 m².

Fyrirhuguð uppbygging felst í 15 herbergja hótelviðbyggingu með 30 gistirúmum til viðbótar þeim 11 herbergjum sem eru í núverandi hóteli. 60 herbergja hóteli með samtals 120 gistirúmum. 4 orlofshúsum, samtals að hámarki 800 m² með 32 gistirúmum. 5 raðhúsum, samtals að hámarki 1.350 m² með 120 gistirúmum og einu íbúðarhúsi með 4 gistirúmum.