Bakvörðurinn Alex Helgi Óskarsson hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnufélag Fjallabyggðar út keppnistímabilið 2027, eða um tvö ár.
Alex spilaði í hægra bakverði í sumar fyrir liðið og á skráða 24 leiki í meistaraflokki á Íslandsmótinu og bikarkeppnum. Hann er fæddur árið 2007 og átti fast sæti í liðinu síðasta sumar.