Fjögur ungmenni frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar eru nú í æfingaferð í skíðagöngu í Noregi ásamt fleiri iðkendum frá Íslandi. Æfingabúðirnar eru á vegum Skíðasambands Íslands og kallast Hæfileikamótun. Ferðin er frá 21.-29. nóvember og var í boði fyrir iðkendur fædda 2007 – 2009.
Ungmennin og fjölskyldur þeirra greiða ferðina að mestu leyti en SKÍ greiðir kostnað fyrir þjálfara og fararstjóra.
Frétta- og fræðslusíða UÍF greindi frá þessu.