Ungmennaráð Fjallabyggðar hefur lagt til að haldið verði íbúaþing fyrir ungmenni í Fjallabyggð, þar sem þau  fá tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri. Fjármagn Ungmennaráðs Fjallabyggðar fyrir árið 2012 verður notað í verkefnið. Stefnt er að því að halda íbúaþingið miðvikudeginum 9. maí kl. 17:00 í Menningarhúsinu Tjarnarborg á Ólafsfirði.