Klukkan 12:45 í dag barst tilkynning um umferðarslys á Hringvegi við Neslönd í Mývatnssveit. Bifreið lenti út af þjóðveginum en tveir aðilar voru í bifreiðinni. Viðbragðsaðilar frá Þingeyjarsveit, Húsavík og Akureyri fóru á vettvang.
Annar aðilinn er talinn alvarlega slasaður og notast var við björgunarklippur við að ná viðkomandi út úr bifreiðinni.
Fyrir skömmu flutti þyrla Landhelgisgæslunnar aðilana af vettvangi til aðhlynningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Unnið er að rannsókn slyssins.

Vegna vinnu á vettvangi geta orðið umferðartafir um Hringveg norðan og vestan við Mývatn fram eftir degi. Vegfarendum er bent á veginn austan og sunnan við Mývatn.