Það hefur sýnt sig undanfarin ár að umferðartölur í gegnum Héðinsfjarðargöng taka kipp ef einhverjir viðburðir eru í Fjallabyggð. Á föstudagskvöld spilaði Bubbi Morthens á Allanum Siglufirði, og var það mesti umferðardagurinn í gegnum Héðinsfjarðargöng s.l. viku.

Á föstudaginn 5. okt fóru 669 bílar í gegnum Héðinsfjarðargöng. Laugardaginn 6. okt fóru 376 bílar í gegn. Fimmtudagurinn 4. okt var einnig stór en þá fóru 581 bílar í gegnum  göngin.

Tölur eru samanlögð umferð óháð akstursstefnu.