Húnavaka var um nýliðna helgi á Blönduósi þar sem viðburðahaldarar áætla að um 5.000 manns hafi sótt hátíðina heim. Skemmtanahöld fóru heilt yfir mjög vel fram, en lögregla var með umtalsvert eftirlit á svæðinu m.a. vegna áfengissölu og með ungmennum yngri en 18 ára.
Tilkynnt var um eina líkamsárás á Húnavöku og hafði lögregla afskipti af einstaklingum vegna stympinga að afloknu skemmtanahaldi aðfararnótt sunnudags.
Þá var einnig viðtækt eftirlit með ölvunarakstri á og við Blönduós um helgina, en tveir ökumenn mældust undir refsimörkum og var gert að hætta akstri. Þá voru þrír ökumenn grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Það er mat varðstjóra Lögreglunnar á Norðurlandi vestra að helgin hafi gengið vel fyrir sig miðað við þann mannfjölda sem var á svæðinu.