Um 500 gestir mættu við Ísstöðina á Dalvík og upplifðu upptaktstónleika Whale Music Festival þann 8. ágúst síðastliðinn. Stemningin var einstök, tónlistin stórkostleg og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum samkvæmt upplýsingum frá tónleikahaldara.
Ný menningarhátíð við Eyjafjörð á sannarlega framtíð fyrir sér og er undirbúningur hafinn fyrir næstu hátíð Whale Music Festival 2027. Fjölmargir styrktaraðilar og samstarfsaðilar komu að þessu verkefni.
Gestir sköpuðu góða stemningu á þessum fyrstu tónleikum hátíðarinnar.
Í hljómsveitinni voru:
* Eyþór Ingi Gunnlaugsson – söngur
* Óskar Logi Ágústsson – gítar
* Benedikt Brynleifsson– trommur
* Þórður Sigurðsson – Hammond-orgel
* Matthías Mogensen – bassa
Gestasöngvarar Dagur Atlason og Elísa Rún Gunnlaugsdóttir.
Undirbúningur og framkvæmd hátíðar:
* Guðmundur Guðlaugsson
* Jóhann Már Kristinsson
* Aron Freyr Heimisson
* Dagur Atlason
* Eric Martellozzo
* Björn Þór Guðmundsson
* Gunnlaugur Antonsson
* Sigmar Örn Harðarson