Skólastarf er að hefjast að nýju í grunnskólum Akureyrarbæjar. Gert er ráð fyrir að um 2.500 nemendur sæki grunnskóla í vetur hjá Akureyrarbæ. Þar af eru 212 börn skráð í 1. bekk, og hefja þar með sína grunnskólagöngu.Lundarskóli er fjölmennasti grunnskólinn á Akureyri með um 490 nemendur, en sá fámennasti er Hríseyjarskóli í Hrísey með 15 nemendur.
Að venju útvegar Akureyrarbær öllum nemendum ritföng og önnur námsgögn. Foreldrum er því einungis ætlað að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, auk íþrótta- og sundfatnaði. Þá býðst öllum grunnskólanemendum að fá heitan hádegismat í mötuneytum skólanna, án þess að greiða fyrir.