Í vikunni var afmælishátíð hjá björgunarsveitinni Skagfirðingasveit í Skagafirði.  Um 250 manns heimsóttu sveitina á afmælisdaginn. Upphaflega var talið að sveitin yrði 60 ára í ár, en nýlega kom í ljós að sveitin var upphaflega stofnuð 1932, en lagðist í dvala um árið 1953 og var síðar endurreist árið 1965. Það stendur því til að fagna 100 ára afmælinu eftir 7 ár.
Þessi ártöl komu í ljós þegar fulltrúar sveitarinnar heimsóttu Héraðsskjalsafn Skagfirðinga fyrr í sumar.