Um síðustu helgi fór fram afmælishátíð Tennis- og Badmintonfélags Siglufjarðar en félagið verður 60 ára þann 5. desember. Fimm einstaklingar voru heiðraði fyrir ómetanlegt star fyrir félagið til fjölda ára. Þetta voru: Anna María Björnsdóttir, Bjarni Sigurður Árnason, María Jóhannsdóttir, Ólafur Helgi Marteinsson og Vilborg Rut Viðarsdóttir.
Síðastliðinn föstudag var opið hús hjá TBS þar sem yfir 100 manns mættu og léku sér í badminton.
Á laugardeginum fór fyrst fram afmælismót fyrir 1.-5. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar þar sem um 40 iðkendur félagsins tóku þátt. Allir fengu glæsilegan verðlaunapening í lokin.
Um miðjan dag var afmæliskaffi þar sem um 100 manns mættu kaffi.
